Sumarmál

Reynir Grétarsson og ný bók, Listasafn Reykjanesbæjar,fugl dagsins

Reynir Grétarsson geystist óvænt fram á ritvöllinn í fyrra þegar hann sendi frá sér tvær bækur, ævisöguna Fjórar árstíðir og glæpasöguna Líf sem tilnefnd var til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Á dögunum kom út eftir hann bókin Bókasafn gagnslausra hugsana auk þess sem Kortabók Íslands sem hann sendi frá sér fyrir tíu árum var endurútgefin. Og mögulega eru fleiri bækur væntanlegar í ár. Reynir var gestur Sumarmála í dag.

Safn vikunnar er Listasafn Reykjanesbæjar. Um þessar mundir stendur yfir uppsetning sýningarinnar Nína, okkar kærasta Nína / Nína, our dear Nína, þar sem verk Nínu Sæmundssonar eru í samtal við verk nokkra samtímalistamanna. Sýningin er sýningarstýrð af Yndu Eldborg og Viktoríu Guðnadóttur og skoðar lífsverk Nínu út frá hinsegin linsu. Helena Solveigar Aðalsteinsbur sérfræðingur sagði okkur frá.

Og fugl dagsins var fyrstur á dagskrá

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-24

Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.

Carpenters - (They long to be) Close to you.

Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir - Ég vissi svo vel.

Litefun - SOFIA.

Birt

24. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,