Sumarmál

Ferð Margrétar til Kenýa og fugl dagsins

Á föstudögum í sumar heyrum við ferðasögur, fáum áhugaverða einstaklinga, einn eða jafnvel fleiri, til segja okkur frá áhugaverðu ferðalagi, yfirleitt á framandi slóðir, eða þá í einhverjum áhugaverðum tilgangi. Í dag kom Margrét Jóhannsdóttir í þáttinn og sagði okkur frá ferð hennar til Kenya fyrir skemmstu. Hún kynntist Carol Wanijku Mwangi, sem er fædd og uppalin í Nanyiuki héraði í Kenýa en býr í Laxárholti á Mýrum. Carol stognaði fyrirtæki sem heitir Frá Ís til Safari, þar sem hún skipuleggur ferðir til Kenya og Margrét sló til og skellti sér í eina slíka í fylgd með Carol. Í sögunni komu strútar, fílar, gíraffar, zebrahestar, Masai þjóðflokkurinn, ljónahjörð og margt fleira áhugavert við sögu.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Bitterblue / Bonnie Tyler

Riddari kærleikans / GDRN

Jambo Bwana / Safari Sound Band

Malaika / Boney M.

UMSJÓN: BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

10. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,