• 00:08:46Fugl dagsins
  • 00:20:42Erlendur Þorsteinss. - hjólreiðar í umferðinni
  • 00:35:18Jeppaþjóðin #3 - Snorri og Ferðaklúbburinn 4x4

Sumarmál

Idaho reglan fyrir hjólreiðafólk, Snorri og 4x4 í Jeppaþjóðinni og fugl dagsins

Sífellt fleiri velja hjóla eða ganga hvort sem það er til og frá vinnu, skóla eða sér til heilsubótar því það er ekki bara gott fyrir heilsuna heldur líka umhverfið og budduna. Þrátt fyrir hjólastígum hafi fjölgað á höfuðborgarsvæðinu getur verið þrautin þyngri komast klakklaust leiðar sinnar líkt og flestir þeir sem nýta sér þennan ferðamáta þekkja. Erlendur S. Þorsteinsson, formaður Landssambands hjólreiðamanna, kom í þáttinn í dag og sagði okkur til dæmis frá Idaho reglunni og fleiru þar sem reynt er bæta öryggi hjólreiðafólks í umferðinni.

Við fengum svo þriðja innslagið í dag af Jeppaþjóðinni hennar Elísabetar Theu Kristjánsdóttur. Í dag talaði Elísabet Thea við Snorra Ingimarsson, einn af stofnendum Ferðaklúbbsins 4x4, og hann sagði henni söguna af upphafi jeppabreytinga á Íslandi, sem er samofin sögu klúbbsins, ágreiningnum við yfirvöld og samtalinu sem leiddi til sátta og skapaði grundvöll fyrir hraða þróun íslenskrar vetrarferðamennsku, líkt og frumferðum jeppa á jökla hálendisins og því hvernig Íslendingar urðu frumkvöðlar á heimsvísu í akstri á snjó.

Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Kling Klang - Dátar (Þórir Baldursson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)

Vegir liggja til allra átta - Vilhjálmur og Elly Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, texti Indriði G. Þorsteinsson)

Marz / John Grant (John Grant)

Á fjöllum / Kátir piltar (Atli Geir Grétarsson)

Money for Nothing / Dire Straits (Mark Knopfler & Sting)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

15. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,