Sífellt fleiri velja að hjóla eða ganga hvort sem það er til og frá vinnu, skóla eða sér til heilsubótar því það er ekki bara gott fyrir heilsuna heldur líka umhverfið og budduna. Þrátt fyrir að hjólastígum hafi fjölgað á höfuðborgarsvæðinu getur verið þrautin þyngri að komast klakklaust leiðar sinnar líkt og flestir þeir sem nýta sér þennan ferðamáta þekkja. Erlendur S. Þorsteinsson, formaður Landssambands hjólreiðamanna, kom í þáttinn í dag og sagði okkur til dæmis frá Idaho reglunni og fleiru þar sem reynt er að bæta öryggi hjólreiðafólks í umferðinni.
Við fengum svo þriðja innslagið í dag af Jeppaþjóðinni hennar Elísabetar Theu Kristjánsdóttur. Í dag talaði Elísabet Thea við Snorra Ingimarsson, einn af stofnendum Ferðaklúbbsins 4x4, og hann sagði henni söguna af upphafi jeppabreytinga á Íslandi, sem er samofin sögu klúbbsins, ágreiningnum við yfirvöld og samtalinu sem leiddi til sátta og skapaði grundvöll fyrir hraða þróun íslenskrar vetrarferðamennsku, líkt og frumferðum jeppa á jökla hálendisins og því hvernig Íslendingar urðu frumkvöðlar á heimsvísu í akstri á snjó.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Kling Klang - Dátar (Þórir Baldursson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Vegir liggja til allra átta - Vilhjálmur og Elly Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, texti Indriði G. Þorsteinsson)
Marz / John Grant (John Grant)
Á fjöllum / Kátir piltar (Atli Geir Grétarsson)
Money for Nothing / Dire Straits (Mark Knopfler & Sting)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir