• 00:09:29Fugl dagsins
  • 00:20:44Ingibjörg, Ragna og Helgi - Landsmót skáta
  • 00:38:10Ragnhildur Helga - Landbúnaðarsafn Íslands

Sumarmál

Landsmót skáta á Hömrum, Landbúnaðarsafn Íslands og fugl dagsins

Bandalag íslenskra skáta heldur Landsmót skáta á Hömrum í næstu viku. Hátt í tvö þúsund manns munu þá koma saman, skátar á aldrinum 10-18 ára, ásamt fullorðnum foringjum og sjálfboðaliðum frá 13 þjóðlöndum. Þar verður fjölbreytt dagskrá, útivist, leikir, fræðsla og samfélagsverkefni. Ingibjörg Guðmundsdóttir mótsstjóri mætti í hljóðver RÚV á Akureyri ásamt Rögnu Steinunni Heimisdóttur og Helga Fannari Steinþórssyni, en þau eru bæði skátar í Klakki á Akureyri. Þau sögðu okkur betur frá Landsmótinu og því vera skátar.

Safn vikunnar í þetta sinn var svo Landbúnaðarsafn Íslands. Ragnhildur Helga Jónsdóttir safnstjóri kom í þáttinn og sagði okkur frá því hvað er á döfinni hjá þeim í sumar, meðal annar Saga laxveiða í Borgarfirði, Stofa Sigga Skarp og svo grunnsýningin.

Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

I Don’t like Mondays / Boomtown Rats (Bob Geldof)

Monday, Monday / Mamas and Papas

Rainy Days and Mondays / The Carpenters

Mánudagur / KK Band (Kristján Kristjánsson)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

13. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,