Sumarmál

Nashville, sundlaugar og baðlón og fuglinn

Borgin Nashville í Tennessee krufin eftir stutta heimsókn dagskrárgerðarkonunnar Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur. Hún segir frá Honky Tonk Highway eða Broadway í miðbænum þar sem tónlistin lifir frá morgni til kvölds sem og hinni bráðnauðsynlegu fjárfestingu í kúrekastígvélum.

Ferðafrömuðurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson ferðafrömuður heldur áfram með sitt Veganesti þar sem hann fjallar um hin ýmsu baðlón og sundlaugar Íslands sem bæði landinn og ferðamenn eru æst í heimsækja landshorna á milli sumri til.

Þá er fugl dagsins á sínum stað.

Tónlist þáttarins:

Fitzgerald, Ella, Buddy Bregman Orchestra - So in love.

Þórarinn Hjartarson, Ragnheiður Ólafsdóttir - Sólskríkjan.

Eilish, Billie - Birds of a Feather (Clean).

Jackson, Alan - Chattahoochee.

Sigrún Hjálmtýsdóttir - Blue.

Birt

9. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,