• 00:08:45Fugl dagsins
  • 00:20:21Pálína Ósk - Unglingalandsmót
  • 00:33:29Bæjarperla #5 - Höfn í Hornafirði

Sumarmál

Unglingalandsmót á Sauðárkróki, bæjarperlan Höfn í Hornafirði og fugl dagsins

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um komandi verslunarmannahelgi. Mótið fer þessu sinni fram á Sauðárkróki og von er á þúsundum gesta. Pálína Ósk Hraundal er verkefnastjóri mótsins og við slógum á þráðinn til hennar og heyrðum af fjölbreyttum keppnisgreinum og vaxandi stemmingu fyrir helginni.

Við fengum fimmtu bæjarperluna í dag frá Hinriki Wöhler, sem hefur ferðast um landið fyrir Sumarmál. Í Bæjarperlum vikunnar var ferðinni heitið á Höfn í Hornafirði. Þar gekk Hinrik með Huldu Laxdal Hauksdóttur um hafnarsvæðið og ræddi við hana um uppbyggingu bæjarins og lífið í gömlu verbúðunum í Miklagarði. Síðan fór Hinrik í allt aðra sálma, en Íslandsmótið í motocross fór fram á Höfn 18. júlí. Þar ræddi hann við Guðna Þór Valþórsson, varaformann Akstursíþróttafélags Austur-Skaftafellssýslu, um uppbyggingu brautarinnar, íþróttina og keppnina.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Hamingjan er hér / Jónas Sigurðsson (Jónas Sigurðsson)

Something / The Beatles (George Harrison)

Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason)

Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Jónína Guðrún Eysteinsdóttir og Baldur Hjörleifsson, texti Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)

Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Birt

28. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,