
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um komandi verslunarmannahelgi. Mótið fer að þessu sinni fram á Sauðárkróki og von er á þúsundum gesta. Pálína Ósk Hraundal er verkefnastjóri mótsins og við slógum á þráðinn til hennar og heyrðum af fjölbreyttum keppnisgreinum og vaxandi stemmingu fyrir helginni.
Við fengum fimmtu bæjarperluna í dag frá Hinriki Wöhler, sem hefur ferðast um landið fyrir Sumarmál. Í Bæjarperlum vikunnar var ferðinni heitið á Höfn í Hornafirði. Þar gekk Hinrik með Huldu Laxdal Hauksdóttur um hafnarsvæðið og ræddi við hana um uppbyggingu bæjarins og lífið í gömlu verbúðunum í Miklagarði. Síðan fór Hinrik í allt aðra sálma, en Íslandsmótið í motocross fór fram á Höfn 18. júlí. Þar ræddi hann við Guðna Þór Valþórsson, varaformann Akstursíþróttafélags Austur-Skaftafellssýslu, um uppbyggingu brautarinnar, íþróttina og keppnina.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Hamingjan er hér / Jónas Sigurðsson (Jónas Sigurðsson)
Something / The Beatles (George Harrison)
Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason)
Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Jónína Guðrún Eysteinsdóttir og Baldur Hjörleifsson, texti Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)
Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.