Sumarmál

Húmanistar,Jeppaþjóðin og fuglinn

Heimsþing húmanista 2026 fór fram í Ottawa helgina 7.–9. ágúst undir yfirskriftinni „Humanism as Resistance“ eða Húmanismi sem andspyrna. Þar komu um 500 húmanistar alls staðar úr heiminum. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir formaður Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi og Kristrún Ýr Einarsdóttir, athafnastjóri og húmanisti, sóttu þingið og sögðu okkur aðeins frá því og erindi húmanismans í heiminum.

Í lokaþættinum af Jeppaþjóðinni ræðir Elísabet Thea við Magnús Tuma, prófessor í jarðeðlisfræði, sem þessa dagana er við mælingar á gosstöðvum inn Fjallabaki, um tengsl jeppa og jöklarannsókna.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-26

Parton, Dolly - 9 to 5.

Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Fuglinn.

Jóhanna Vigdís Arnardóttir - Sigraðu fjöllin.

Birt

26. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,