Sumarmál

Áhugamál og tilfinningalíf og byggðasafnið í Garði

Hver eru tengsl áhugamála og tilfinningalífs? Freyja Steindórsdóttir er doktorsnemi i klínískri sálfræði við Háskólann í Glasgow og er rannsaka nákvæmlega þetta. Hún segir okkur líka frá því hvernig er búa í Skotlandi, sem hún hefur gert síðustu 8 ár.

Safn vikunnar er Byggðasafnið á Garðskaga. Byggðasafnið á Garðskaga undirbýr sig fyrir taka á móti fjölda gesta sem ætla upplifa almyrkvann á Garðskaga. Það sem einkennir safnið mest er Vélasafn Guðna Ingimundarsonar, Guðna á Trukknum, en einnig er áhugaverð sýning sem ber nafnið Hugur, heimili og handverk sem segir og sýnir frá heimili á bilinu 1940 til 1970. Sýningin Ást á milli vita er og segir ástarsögu Ólafar þjónustustúlku á Reykjanesvita og Eyjólfs vitavarðar í Garðskagavita frá 1897. Margrét I Ásgeirsdóttir forstöðukona safna í Suðurnesjabæ segir okkur frá starfi safnsins.

Tónlist í þættinum:

Komdu í kvöld/Björgvin Halldórsson og Raggi Bjarna (Höf: Jón Sigurðsson)

Sunrise/Norah Jones

Sólarsamban/Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson-Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)

Lífsgleði/Hljómar(Gunnar Þórðarsson - Þorsteinn Eggertsson)

Birt

10. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,