Bandalag íslenskra skáta heldur Landsmót skáta á Hömrum í næstu viku. Hátt í tvö þúsund manns munu þá koma saman, skátar á aldrinum 10-18 ára, ásamt fullorðnum foringjum og sjálfboðaliðum frá 13 þjóðlöndum. Þar verður fjölbreytt dagskrá, útivist, leikir, fræðsla og samfélagsverkefni. Ingibjörg Guðmundsdóttir mótsstjóri mætti í hljóðver RÚV á Akureyri ásamt Rögnu Steinunni Heimisdóttur og Helga Fannari Steinþórssyni, en þau eru bæði skátar í Klakki á Akureyri. Þau sögðu okkur betur frá Landsmótinu og því að vera skátar.
Safn vikunnar í þetta sinn var svo Landbúnaðarsafn Íslands. Ragnhildur Helga Jónsdóttir safnstjóri kom í þáttinn og sagði okkur frá því hvað er á döfinni hjá þeim í sumar, meðal annar Saga laxveiða í Borgarfirði, Stofa Sigga Skarp og svo grunnsýningin.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
I Don’t like Mondays / Boomtown Rats (Bob Geldof)
Monday, Monday / Mamas and Papas
Rainy Days and Mondays / The Carpenters
Mánudagur / KK Band (Kristján Kristjánsson)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir