• 00:05:17Fugl dagsins
  • 00:17:59Ugla Stefanía - Saga Gleðigöngunnar
  • 00:31:22Jeppaþjóðin

Sumarmál

Gleðigangan, jeppaþjóðin og fuglinn sívinsæli

Á morgun ætlar Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks leiða gesti um slóðir gleðigöngunnar og forvera hennar í gegnum árin í miðbæ Reykjavíkur. Gangan er auðvitað hápunktur hátíðarinnar en hvernig byrjaði þetta allt saman og hvernig hafa áherslur breyst í gegnum tíðina og af hverju? Við heyrðum í Uglu.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað í þættinum.

Elísabet Thea Kristjánsdóttir hélt áfram skoða jeppaþjóðina og í hennar innslagi í dag fræddi jeppakonan Snædís Arnardóttir okkur um það hvernig ferðast um hálendið í sátt við náttúru og umhverfi og hvaða siði ferðafólk ætti hafa í heiðri á fjöllum.

Tónlist:

Ásgeir - Heartbeat / Lag: Ásgeir Trausti Einarsson, texti: Ásgeir Trausti og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson.

Travis - Why does it always rain on me? / Höf.: Fran Healy.

Guðjón Þorgils Kristjánsson - Framávið (lag Hinsegin daga) / Höf.: Guðjón Þorgils, Axel Ingi Árnason, Inga Auðbjörg K. Straumland.

Hjálmar - Áttu vinur augnablik / Lag: Þorsteinn Einarsson, texti: Hjálmar.

Birt

5. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,