• 00:06:25Fugl dagsins
  • 00:16:36Bæjarperlur frá Þingeyri og Dýrafirði
  • 00:36:42Nýlistasafnið - Heiðar Kári Rannversson

Sumarmál

Nýlistasafnið og bæjarperlur frá Þingeyri og Dýrafirði

Safn vikunnar þessu sinni var Nýlistasafnið, sem er listamannarekið safn og sýningarrými með það markmiði varðveita og sýna samtímalist og vera vettvangur fyrir tilraunir og alþjóðlega umræðu um myndlist. Heiðar Kári Rannversson formaður stjórnar safnsins og safnstjóri kom til okkar og sagði okkur meira.

Þá fengum við bæjarperlu frá Hinriki Wöhler, en í bæjarperlum vikunnar var ferðinni heitið á Þingeyri og í Dýrafjörð. Fyrst var komið við í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal, þar sem rætt var við Elfar Loga Hannesson, leikara og rithöfund. Hann sagði frá starfsemi leikhússins, sýningum sumarsins og áherslunni á vestfirskar sögur.

Í seinna innslaginu var kaffihúsið Simbahöllin á Þingeyri heimsótt og rætt við Wouter Van Hoeymissen, sem rekur staðinn ásamt Janne Kristensen. Hann sagði frá komu þeirra til Þingeyrar, uppbyggingu Simbahallarinnar og listaverkefninu Tanki við höfnina.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist:

Borgarljós - Stefán Hilmarsson, Eyjólfur Kristjánsson og Björgvin Halldórsson /Lag: Bergþóra Árnadóttir, texti: Sigurður Anton Friðjónsson.

Helplessly hoping - Crosby, Stills and Nash / Höf.: Stephen Stills.

Mexico - Snorri Helgason og Bríet - / Höf.: Snorri Helgason.

And I love her - The Beatles / Höf.: Lennon og MacCartney.

Birt

4. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,