• 00:06:04Fugl dagsins
  • 00:20:07Valerio Gargiulo - Sögur frá Napólí
  • 00:33:42Páll Ásgeir og Veganestið - listin að tjalda

Sumarmál

Valerio og Sögur frá Napólí, listin að sofa í tjaldi og fugl dagsins

Í dag skelltum við okkur til Napoli með viðkomu í Garðabænum. Valerio Gargiulo er fæddur og uppalinn í Napólí en hefur búið á Íslandi í nærri aldarfjórðung. Hann vinnur á leikskóla í Garðabæ, kennir ítalska matreiðslu og skrifar bækur bæði á íslensku og ítölsku, matreiðslubækur þar sem hann deilir uppskriftum frá Napólí ásamt sögum um uppruna réttanna og ítalska matarmenningu, en nýjasta bókin hans, Sögur frá Napólí, fjallar um borgina sem ól hann upp, persónulegar sögur um götur, folk, matarmenningu, minningar og stemninguna sem hann tengir við Napólí. Valerio var hjá okkur í dag.

Svo kom Páll Ásgeir Ásgeirsson ferðamálafrömuður til okkar í fimmta Veganestið sem hann hefur komið með til okkar á fimmtudögum í sumar. Í þetta sinn talaði hann um tjaldferðir eða listina sofa í tjaldi. Kannski ekki tilviljun þar sem verlsunarmannahelgin er fram undan.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Minningar / Þuríður Sigurðardóttir og Jóhann Vilhjálmsson (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)

This Must be the Place (Naive Melody) / Talking Heads (David Byrne, Chris Frantz, Jerry Harrison og Tina Weymouth)

That’s Amore / Dean Martin (Gus Levene, Jack Brooks & Harry Warren)

Falling Slowly / The Swell Season (Glen Hansard & Markéta Irglová)

Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Birt

30. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,