• 00:08:22Fugl dagsins
  • 00:21:57Stefán Hrafn - Fókus félag áhugaljósmyndara
  • 00:41:30Bæjarperla #4 Öræfasveit

Sumarmál

Fókus félag áhugaljósmyndara, Bæjarperlan Öræfasveit og fugl dagsins

Ein mynd segir meira en þúsund orð er frasi sem hefur gjarnan verið notaður yfir sterkar áhrifaríkar ljósmyndir, en í ár eru 200 ár liðin frá því fyrsta varðveitta ljósmyndin var tekin. Við forvitnuðumst um ljósmyndun í dag, en Fókus, félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999 og er í dag blómlegt félag. Stefán Hrafn Jónsson, formaður félagsins, er ástríðuljósmyndari og hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá félaginu, ljósmyndaástríðunni og bara eins miklu ljósmyndatengt og við munum koma á um það bil 15 mínútum.

Í Bæjarperlum vikunnar fer Hinrik Wöhler í Öræfasveit. Þar ræðir hann við Svanhvíti Helgu Jóhannsdóttur, sem hefur búið í Öræfum alla sína tíð. Hún er kennari við Fjallaskóla Íslands, leiðsögumaður og félagi í björgunarsveitinni Kára. Svanhvít ræddi um jöklana, gönguleiðirnar, ferðamennskuna og landslagið sem mótar lífið í Öræfum. Því næst kom Hinrik við á næsta í Svínafelli hjá Regínu Hreinsdóttur. Hún hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið ferðaþjónustu um árabil og opnaði nýlega sveitakrána Nýja fjárhúsið í gömlu fjárhúsi.

Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Hjarta mitt / Eivör Pálsdóttir (Eivör Pálsdóttir)

There is a Light That Never Goes Out / The Smiths (Johnny Marr og Morrissey)

Misguided Angel / Cowboy Junkies (Margo Timmins og Michael Timmins)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

21. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,