• 00:09:52Fugl dagsins
  • 00:20:52Þórný Jóhannsd. - Omnytherapy
  • 00:38:39Veganestið #3 - fjallgöngur

Sumarmál

Þórný Jóhannsdóttir og omnitherapy, fjallgöngur í Veganestinu og fugl dagsins

Þórný Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og þerapisti, lagðist inn á geðdeild fyrir þrjátíu árum. Þar var hún greind með alvarlegan og ólæknandi geðsjúkdóm. Þetta var mikið áfall og næstu árin lituðust af veikindunum. En lífið hélt áfram og hún flutti til Danmörkur þar sem hún kynntist sálmeðferð sem kallast omnitherapy sem breytti hennar lífi. Þórný kom í þáttinn í dag og sagði okkur sína sögu en hún starfar í dag eftir þessari aðferð, en það verður námskeið hér á landi í samstarfi við Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð í september.

Við fengum svo þriðja innslagið af Veganestinu þar sem Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistafrömuður kemur til okkar og í dag voru það fjöll og fjallgöngur. Páll talaði um hvernig fjallgöngur eru frábrugðnar annarri útivist, hann útlistaði hvað gerir fjöll aðlaðandi fyrir göngufólk og nefndi nokkur fjöll vítt um landið sem freista fjallgöngumanna og af hverju.

Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Aksjónmaður - Spilverk þjóðanna

Lítill fugl / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson)

I Put a Spell on You / Nina Simone (Hawkins & Slotkin)

Fjallaloft / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Karl Teague, Magnús Trygvason Eliassen og Daníel Friðrik Böðvarsson)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

16. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,