• 00:07:47Fugl dagsins
  • 00:20:11María Mjöll sendiherra - Bastilludagur og fótbolti
  • 00:33:59Bæjarperla #3 - Stykkishólmur

Sumarmál

María Mjöll sendiherra í París, bæjarperlan Stykkishólmur og fugl dagsins

Bastilludagurinn er í dag og í kvöld kemur í ljós hvort það verða Frakkar eða Spánverjar sem leika til úrslita á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu á sunnudaginn. Í París hófust hátíðarhöldin strax í gærkvöldi með flugeldasýningu við Eiffel turninn og ef Frakkar fara með sigur af hólmi í nágrannaslagnum í kvöld verður væntanlega fagnað langt fram á nótt þrátt fyrir hitabylgju og skógarelda. María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra Íslands í Frakklandi, tekur þátt í hátíðarhöldunum í París og við slógum á þráðinn til hennar í þættinum í dag.

Í þriðju bæjarperlu sumarsins sem við fáum frá Hinriki Wöhler heimsækir hann Stykkishólm. Þar er glæsilegur níu holu golfvöllur og sannarlega ein af perlum bæjarins. Á Víkurvelli segir Ríkharður Hrafnkelsson frá sögu Golfklúbbsins Mostra, uppbyggingu vallarins og því sem gerir hann sérstakan. Síðan liggur leiðin niður höfn, þar sem Kristján Lár Gunnarsson segir frá Breiðafirði, eyjunum, náttúrunni og lífinu við fjörðinn.

Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Tous les garçons et les filles / Unnur Sara Eldjárn

La mer / Charles Trénet

Quelque chose / Carla Bruni - ítölsk en býr í Frakklandi

Ne me quitte pas / Jacques Brel sem er vísu fæddur í Belgíu en flutti til F á sjötta áratugnum.

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

14. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,