• 00:09:32Fugl dagsins
  • 00:20:08Ása Bergný - Vestfirskur framburður
  • 00:35:21Páll Ásgeir - Veganestið #1 - maðurinn og náttúran

Sumarmál

Er vestfirskur framburður að hverfa? Samband manns og náttúru og fugl dagsins

Er vestfirskur framburður hverfa? Ása Bergný Tómasdóttir, doktorsnemi í málvísindum og Stefanie Bade, aðjúnkt við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands) skrifuðu saman grein í Ritið, tímarit Hugvísindarstofnunar HÍ, sem bar yfirskriftina Vestfirskur framburður. Þar kemur fram vestfirski framburðurinn á undanhaldi en þó enn vel þekktur meðal almennings. Ása kom til okkar í dag og sagði betur frá vestfirska framburðinum og stöðu hans.

Svo kom Páll Ásgeir Ásgeirsson ferðafrömuður til okkar, eins og síðustu sumur, með það sem við Veganestið. Það eru áhugaverðar hugvekjur um útivist og hreyfingu og í dag byrjaði hann á því fjalla um samband manns og náttúru og hversu mikilvægt það er. Útivera snertir öll okkar skilningarvit og hefur margvísleg góð áhrif á okkur og útivist þarf ekki vera flókin.

Og svo er það auðvitað fugl dagsins.

Tónlistin í þættinum:

Töfrar / Silfurtónar (Júlíus H Ólafsson)

Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)

Byrjaðu í dag elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar)

Happiness / Union Station og Alison Krauss (Victor Krauss og Michael McDonald)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

2. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,