Unnsteinn Manuel föstudagsferðalangur og fugl dagsins
Unnsteinn Manuel Stefánsson kom í lokaþátt Sumarmála þetta sumarið og sagði ferðasögur. Fugl dagins var svo auðvitað á sínum stað.
Páll Ásgeir Ásgeirsson ferðafrömuður ræddi náttúruperlur í nágrenni Reykjavíkur og gönguleiðir á Vesturlandi. Þá hitti Helga Arnardóttir á listamanninn Bergþór Morthens á Siglufirði þar sem hann dvelur jafnan hluta úr ári, en býr þess utan og starfar í Svíþjóð. Þau ræddu listina, innblástur, vinnuaga, liti og bruna sem varð á vinnustofu hans í Svíþjóð þar sem öll hans verk eyðilögðust.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist:
Mannakorn - Á meðan sumar framhjá fer.
The Beatles - I'll follow the sun.
Everybody's talkin' - Nilsson.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.