Morgunútvarpið

Verslunarmannahelgin gerð upp, tvíburahátíð í Ohio og saga minksins á Íslandi

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri er orðin ein af föstu punktum í hátíðaflórunni um verslunarmannahelgi ári hverju en hátíðinni lauk á sunnudagskvöldið með glæsilegri flugeldasýningu eftir stórtónleika þar sem landslið tónlistarfólks og skemmtikrafta var komið saman. Veðurspáin þótti ekki góð í vikunni fyrir en rættist talvert úr þegar leið á helgina. Við heyrðum í Lovísu Oktovíu Eyvindsdóttur sem er ein skipuleggjenda Einnar með öllu.

Hápunktur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum var, rétt eins og fyrir norðan, á sunnudagskvöldinu þegar hinn kunni brekkusöngur fór fram, blys tendruð á klettinum og þúsundir gesta heimsóttu Herjólfsdalinn til upplifa þá einstöku stemningu. En fyrir hátíðina í ár var sérstaklega rætt um dræma miðasölu og minni stemningu en áður. Við hringdum í bæjarstjórann, Írisi Róbertsdóttur.

Flestir miðlar fjölluðu vitanlega um stóra minkamálið í síðustu viku en þá sluppu þúsundir minka úr Dalsbúi í Mosfellsdal. Búið er aflífa talsvert af strokuminkunum og um helgina bárust hátt í tuttugu ábendingar um minka á ferðinni. Yfirdýralæknir sagði í viðtali tiltölulega auðvelt þekkja villta minka frá aliminkunum sem var sleppt, strokuminkarnir séu frekar gæfir og komi nánast þegar kallað er á þá. Þorkell Heiðarsson er líffræðingur, fyrrum umsjónarmaður húsdýragarðsins hér í Reykjavík og formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, hann ræddi við okkur um strokuminkana og mögulega hegðun þeirra í nýfengnu frelsi.

Systurnar Elín Hrönn og Hrefna Ósk eru eineggja tvíburar frá Hveragerði og þær eru næstu helgi á leið til Twinsburg í Ohio á risastóra Tvíburahátíð sem þar er haldin árlega. Hátíðin Twins Day Festival er stærsta árlega samkomu tvíbura og fjölbura í heimi og er haldin fyrstu heila helgina í ágúst ár hvert. Hátíðin hófst árið 1976 og laðar þúsundir tvíbura alls staðar úr heiminum. Þær Elín Hrönn og Hrefna Ósk eru á leið á sína sjöttu hátíð og þær sögðu okkur frá hátíðinni.

Birt

4. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,