
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri er orðin ein af föstu punktum í hátíðaflórunni um verslunarmannahelgi að ári hverju en hátíðinni lauk á sunnudagskvöldið með glæsilegri flugeldasýningu eftir stórtónleika þar sem landslið tónlistarfólks og skemmtikrafta var komið saman. Veðurspáin þótti ekki góð í vikunni fyrir en rættist talvert úr þegar leið á helgina. Við heyrðum í Lovísu Oktovíu Eyvindsdóttur sem er ein skipuleggjenda Einnar með öllu.
Hápunktur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum var, rétt eins og fyrir norðan, á sunnudagskvöldinu þegar hinn kunni brekkusöngur fór fram, blys tendruð á klettinum og þúsundir gesta heimsóttu Herjólfsdalinn til að upplifa þá einstöku stemningu. En fyrir hátíðina í ár var sérstaklega rætt um dræma miðasölu og minni stemningu en áður. Við hringdum í bæjarstjórann, Írisi Róbertsdóttur.
Flestir miðlar fjölluðu vitanlega um stóra minkamálið í síðustu viku en þá sluppu þúsundir minka úr Dalsbúi í Mosfellsdal. Búið er að aflífa talsvert af strokuminkunum og um helgina bárust hátt í tuttugu ábendingar um minka á ferðinni. Yfirdýralæknir sagði í viðtali tiltölulega auðvelt að þekkja villta minka frá aliminkunum sem var sleppt, strokuminkarnir séu frekar gæfir og komi nánast þegar kallað er á þá. Þorkell Heiðarsson er líffræðingur, fyrrum umsjónarmaður húsdýragarðsins hér í Reykjavík og formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, hann ræddi við okkur um strokuminkana og mögulega hegðun þeirra í nýfengnu frelsi.
Systurnar Elín Hrönn og Hrefna Ósk eru eineggja tvíburar frá Hveragerði og þær eru næstu helgi á leið til Twinsburg í Ohio á risastóra Tvíburahátíð sem þar er haldin árlega. Hátíðin Twins Day Festival er stærsta árlega samkomu tvíbura og fjölbura í heimi og er haldin fyrstu heila helgina í ágúst ár hvert. Hátíðin hófst árið 1976 og laðar að þúsundir tvíbura alls staðar að úr heiminum. Þær Elín Hrönn og Hrefna Ósk eru á leið á sína sjöttu hátíð og þær sögðu okkur frá hátíðinni.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.