Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr Dalsbúi í Mosfellsdal. Lögregla og meindýraeyðar hafa í dag unnið hörðum höndum að því að hafa uppi á loðdýrunum. Bjarni Bjarnason fjallkóngur Mosfellsdals var á línunni.
Rithöfundurinn Hildur Knútsdóttir vakti athygli á því í vikunni að henni hefði verið boðið samstarf sem fólst í að hún veitti leyfi fyrir afnotum af bókum sínum til að þjálfa gervigreindarforrit án þess að fá greiðslu fyrir. Hildur mætti í hljóðstofu og ræddi stöðu rithöfunda á tímum gervigreindar.
Galdrastrákurinn Harry Potter ætti afmæli á föstudaginn væri hann til í alvöru. Í tilefni af því slær Bókasafn Garðabæjar upp afmælisveislu fyrir börn. Hægt verður að gera sér töfrasprota, búa til sokka fyrir Dobbý og komast að því í hvaða heimavist maður á heima í. Ásbjörg Una er skipuleggjandi afmælisveislunnar.
Þjófnaður og innbrot í miðborg Reykjavíkur þrefölduðust í sumar. Borgin og lögreglan vilja bregðast við þessari þróun meðal annars með því að efla nágrannavörslu, velferðarþjónustu og síðast en ekki síst myndavélaeftirlit. En hvað finnst fólki um að myndavélunum fjölgi? Er það sátt við að eftirlitið með almennum borgurum aukist á meðan yfirvöld reyna að stöðva innbrotahrinuna. Við ákváðum að leggja málið fyrir dómstól götunnar. Við tókum velvalda dómara tali í Kringlunni. Við fáum að heyra hér á eftir hvað þeim finnst.
Leggja á 19 Kv háspennustreng frá Önundarfirði yfir í Staðardal, Súgandafirði, fyrir vestan. Framkvæmdir eru hafnar en þetta er síður en svo einfalt verkefni og kemur þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Gró meðal annars við sögu. Við ræddum við Björn Davíðsson, framkvæmdastjóra Snerpu á Ísafirði.
Vöruhönnuðurinn Jón Helgi Hólmgeirsson var að koma heim úr 2 vikna ferð til Bandaríkjanna þar sem hann lærði að gufubeygja við hjá hinum virta skóla Haystack Mountain School of Craft. Hann lýsir reynslunni sem smá eins og að vera í klaustri.