Hljóðvegur 1

Stærsta kókaínsmygl sögunnar, dómstóll götunnar og steggur í Færeyjum

Ríflega hundrað kílóum af kókaíni var smyglað til landsins á dögunum með súrálsskipi frá Brasilíu. Þetta er stærsta sending af kókaíni sem lögreglan á Íslandi hefur komist yfir. Minnst níu hafa verið handteknir og færðir í gæsluvarðhald vegna málsins, þar af þrír Íslendingar. Þóra Tómasdóttir og Stígur Helgason greindu fyrst frá málinu í dag. Stígur fór yfir málið með okkur.

Noregur mætir Fílabeinsströndinni í 32-liða úrslitum á HM í dag. Norsku áhorfendurnir hafa vakið mikla athygli á mótinu en þeir hvetja sína menn til dáða með því róa í takt og gefa frá sér HÚH! Skiptar skoðanir eru um ágæti þessa uppátækis Norðmanna, sumir eru á því þeir norsku séu einfaldlega stela Víkingaklappinu góða sem Íslendingar gerðu frægt á sínum tíma. Til úr því skorið ákváðum við bera málið undir dómstól götunnar, sem í þetta sinn voru spekingar sem við náðum tali af fyrir framan World Class í Laugum.

Arnór Björnsson sem skrifaði og lék í þáttunum Tuttugu og eitthvað var steggjaður á dögunum. Hann fór sáttur sofa eftir skemmtilega steggjun. Morguninn eftir var hann hinsvegar vakinn, bundið fyrir augun á honum og hann settur upp í flugvél. Hann lenti svo í Færeyjum EINN og fékk þau fyrirmæli ef hann vildi flugmiðann heim þyrfti hann klára ákveðin verkefni. Arnóri tókst þetta, er kominn aftur til Íslands og mætti í hljóðstofunar til okkar og sagði okkur frá þessari óvenjulegu steggjun.

Það er sumarfrí í skólum landsins og boðið upp á allskonar sumarnámskeið fyrir börn. Eitt þeirra er Barbífatahönnun hjá Hönnunarsafn Íslands þar sem krakkar á aldrinum 9-12 ára læra hanna og sauma barbíföt frá grunni. Leiðbeinandinn Guðrún Sigurjónsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá námskeiðinu.

Hveragerðisbær fagnar 80 ára afmæli um þessar mundir. Jóhann Alfreð var í bænum í síðustu viku og mælti sér mót við nýja bæjarstjórann, Ingimar Guðmundsson. Hann er yngsti bæjarstjóri landsins um stundir og hann valdi stað í bænum fyrir hlustendur til segja frá í liðnum Bæjarstjóraröltið.

Það verður garðpartý á Hrísateig 21 í kvöld. Grillið verður heitt, það verður sett upp svið, lifandi tónlist flutt og Jónsmessunni fagnað. Það eru allir velkomnir í fögnuðinn en samhliða á safna framlögum til Ljóssins, endurhæfingamiðstöð fyrir krabbameinsveika. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem húsráðendur standa fyrir sambærilegum fögnuði en Jóhann Alfreð kíkti í heimsókn þegar undirbúningur var í fullum gangi og forvitnaðist um herlegheitin.

Birt

30. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,