Stuðið á HM heldur áfram. Við heyrðum í Helga Hrafni Guðmundssyni, sem búsettur er í Porto í Portúgal, og fengum aðeins að heyra frá stemningunni þegar tæpur klukkutími var í leik Portúgala gegn Úsbekistan.
Við fengum póstkort frá Ísafirði. Í dag var það bæjarstjóraröltið, sem verður vikulega hjá okkur í sumar. Steiney hitti Gylfa Ólafsson, sem tók nýverið við sem bæjarstjóri, og fékk hann til að segja okkur frá kirkjunni á Ísafirði.
Fornleifauppgröftur í Stöð á Stöðvafirði sýnir að landnámið á sér forsögu. Þar hafa fundist dýrmætar minjar og er talið líklegt að þangað hafi komið höfðingjar frá Noregi á ríkulegum skipum. Þrír skálar hafa komið í ljós, tveir eru fullrannsakaðir en sá þriðji er enn til rannsóknar og veldur hann heilabrotum. Hann er hugsanlega næst elsta húsið sem rannsakendur hafa fundist. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur mun í haust gefa út bók um útstöðvarfasann í Stöð og útrás víkinga út á Norður-Atlantshafið. Hann var á línunni.
Náttúrufræðistofnun, Matvælastofnun og Keldur fylgjast í sumar með mögulegum smitferjum hér á landi, það eru moskítóflugur, mítlar og lúsmý. Þessi agnarsmáu dýr geta borið örverur frá einum smituðum einstaklingi til annars. Eftirlitið er ekki síður mikilvægt í ljósi þess að moskítóflugur fundust í fyrsta sinn hér á landi síðasta haust. Matthías Svavar Alfreðsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, sagði okkur betur frá þessu.
Hitabylgja gengur yfir stóran hluta Evrópu, og er ástandið einna verst í Frakklandi þar sem yfirvöld hafa gefið út rauða veðurviðvörun. Óttar Kolbeinsson Proppé, verkefnastjóri hjá Almannarómi, er úti í Frakklandi. Hann hefur reynt að flýja mesta hitann og fór því til Arcachon, rétt utan við Bordeaux. Óttar sagði okkur frá ástandinu úti.