Þjóðbúningurinn í sókn, skipulagsleysi í skipulagsmálum og skátar í stuði
Einn er með stöðu grunaðs vegna eldsvoðans í Drammen í Noregi. Eldur braust út í raðhúsi síðdegis á föstudag og breiddist hratt út í hvassviðrinu. Slökkviliðinu hefur tekist að slökkva eld í byggð en ekki í skóginum. Það ráðgerir að það muni taka rúma viku til viðbótar að slökkva síðustu glæðurnar. Við ræddum málið við Ingibjörgu Söru Guðmundsdóttur, fréttakonu á Rúv sem hefur fylgst vel með málinu.
Steiney var á ferð og flugi í blíðunni á Akureyri. Þar heimsótti hún meðal annars barinn Leyni, ísbúðina Brynju, hönnunarverslunina Sjoppuna í Listagilinu, og landsmót Skáta.
Þá heimsótti hún Kristínu Völu Breiðfjörð, formann og framkvæmdastjóra Heimilisiðnaðarfélags Íslands, en íslenski þjóðbúningurinn hefur verið í mikilli sókn. Fullbókað er á námskeið sem kenna hvernig á að sauma búninginn og æ fleiri sækjast eftir því að klæðast honum á tyllidögum.
Hvernig stendur á því að þétting byggðar og efling almenningssamgangna eiga sér stað á sama tíma og við byggjum ný bílahverfi? Að þessu spyr Þórhallur Bjarni Björnsson, nemi í skipulagsfræði, í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar veltir hann því meðal annars upp hvort höfuðborgarsvæðið sé yfirhöfuð með skýra stefnu í uppbyggingu. Þórhallur var á línunni og fór yfir sýn sína á málinu.
Birt
21. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.