Jóhann Alfreð í Grindavík, dragdrottningar og hagyrðingur vikunnar
Jóhann Alfreð var staddur í Grindavík og hitti meðal annars á Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar fyrir utan leikskólann Laut - en stefnt er að því að hefja skólastarf í Grindavík nú síðsumars í bæði leik- og grunnskólum. Við fengum að forvitnast um það sem er að gerast í bænum nú og uppbyggingarstarfið sem þar fer fram. Hann hitti líka á starfsfólk á veitingastaðnum Papa's í Grindavík og erlenda gesti sem þar voru stödd.
Kristín María Birgisdóttir er búsett í Grindavík og hefur haldið úti fyrirtækinu Discover Grindavík þar sem hún leiðsegir hópum sem heimsækja Grindavík. Við hittum Kristínu Maríu við Efrahóp - staðnum þar sem hraun rann inn í Grindavík í janúar 2024.
Hagyrðingur þessarar viku er tónlistar- og sviðslistakonan Vala Höskuldsdóttir. Hagyrðingur vikunnar kemur með fyrri part sem tengist á einhvern hátt líðandi stundu en það er svo í höndum hlustenda að botna.
Fyrri partur þessarar viku er
Verum hýr og hinsegin
hér um bil í viku
Drag bröns verður haldinn í Austurbæjarbíói um helgina. Drag Brönsinn sameinar glæsilegan bröns, drag sýningu og frábæra stemningu. Markmiðið er að skapa skemmtilega og litríka upplifun þar sem öll eru velkominn – hvort sem fólk þekkir drag heiminn vel eða er að upplifa hann í fyrsta sinn. Agatha P (Ásgeir) og Miss Whoop Whoop (Jómbi) kíktu í heimsókn.
Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafn, Borgarsögusafn og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir í sumar á fimmtudagskvöldum. Yfirskrift göngunnar í kvöld er Frá Frelsisgöngu yfir til Gleðigöngu þar sem rakin verður saga frelsis- og gleðigangna hinsegin fólks. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur mun leiðsegja gönguna.
Birt
6. ágúst 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.