Hljóðvegur 1

Getspaka lágfótan Stjarna, Bandaríkin og Íran, stopp í Staðarskála og Kótilettan

Jóhann Alfreð sat í stúdíó 2 en Hólmfríður María er á leið norður þar sem hún mun senda út frá Landsmóti hestamanna á morgun.

Lágfótan Stjarna á Mjóeyri við Eskifjörð hefur vakið athygli fyrir spádómsgáfu sína í útsláttarkeppni HM sem er í fullum gangi. Við settum okkur í samband austur og vorum með einn staðarhaldara, Anton Berg Sævarsson á línunni þegar Stjarna gerði upp á milli Frakklands og Marokkó fyrir leik kvöldsins.

Við héldum áfram ræða alþjóðamálin. Vopnahlé á milli Írans og Bandaríkjanna er úti og árásir hófust á báða bóga á í gærkvöld. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur var á línunni frá London.

Hólmfríður María stoppaði við í Staðarskála á leið sinni norður og tók út stemmninguna. Hún ræddi þar við Jónu Gunnarsdóttur, vakstjóra sem gef okkur innsýn í gestaganginn og matseldina sem er vinsælust á þessum fjölfarna áningarstað.

Kótilettan fer fram með pompi og prakt um helgina á Selfossi. Einar Björnsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar var á línunni og sagði okkur frá tónlistarhátíðinni, grillsýningunni og stemmningunni sem er fyrirhuguð í bænum um helgina.

Tennis og padel á sífellt meiri vinsældum fagna hér á landi. Tennishöllin í Kópavogi stækkaði nýverið aðstöðu sína og bætti við nýjum padelvöllum. Hólmfríður María kíkti í Kópavoginn og tók feðginin Jónas Pál Björnsson, framkvæmdastjóra og Sofíu Sóley Jónasdóttur, markaðsstjóra tali.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-07-09

LAY LOW - Little By Little.

FRIÐRIK DÓR - Hlið við hlið.

Dean, Olivia - Nice To Each Other.

Birna Eyfjörð - Leiddu mig.

Stewart, Rod - Baby Jane.

PÁLL ÓSKAR - Stanslaust stuð.

Fike, Dominic - Babydoll.

200.000 NAGLBÍTAR - Brjótum Það Sem Brotnar.

Birnir, GDRN - Vilt fá.

LORDE - Royals.

EIRÍKUR HAUKSSON - Gaggó Vest Minningunni).

Hjálmar - Hvað gera fjöllin?.

Krummi - Hinterland.

Birt

9. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,