Það hefur haft gríðarleg áhrif á rekstur verslunarinnar Fjölval á Patreksfirði að ferjan Baldur sigli ekki yfir Breiðafjörð þetta sumarið. Haukur Már Sigurðsson, eigandi verslunarinnar, var á línunni hjá okkur.
Nýsamþykkt samgönguáætlun veldur hestamönnum miklum vonbrigðum en þar er ráðgert að halda árlegu framlagi ríkisisn til reiðvegamála óbreyttu í 100 milljónum króna næstu fimmtán árin. Í yfirlýsingu Landssambands hestamannafélaga segir að Alþingi sé að bregðast öryggi þúsunda hestamanna og láta elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir. Við ræddum þessi mál við Lindu Björk Gunnlaugsdóttur formann sambandsins.
Bragi V. Bergmann er þúsundþjalasmiður. Hann starfaði sem FIFA-dómari um áraskeið og hefur meðal annars verið að velta vöngum yfir fyrirkomulagi vítaspyrnukeppna og framlenginga á stórmótum.
Bragi hefur líka ort kveðskap og limrur - og kastaði fram fyrriparti til að botna vikuna með hlustendum.
Fyrri parturinn er:
Heimsmeistara hyllum við,
hvor mun leika betur?
Hlustendur geta botnað vísuna með því að senda tölvupóst á [email protected].
Mál norskrar stúlku sem lést snemma mánudagsmorgun í síðustu viku eftir að ekið var á hana á Spáni, hefur vakið mikla athygli norskra og spænskra fjölmiðla. Atli Steinn Guðmundsson, blaðamaður Morgunblaðsins og mbl.is, hefur fylgst vel með málinu og rannsókn þess.
Birt
16. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.