Innbrotahrina í miðbænum, Steiney á flakki og 30 gráða hiti
Hitamet sumarsins féll í dag á Austurlandi þar sem hitinn náði 28 gráðum. Hlynur Sveinsson, áhugamaður um veðurfræði, heldur úti Veðurstofu Norðfjarðar og er með sína eigin mæla við Neskaupstað en einn þeirra sýndi 30 gráður í dag. Hann er nú í veðurblíðunni á Borgarfirði eystra. Við spjölluðum við Hlyn um veðurmælingarnar hans.
Jóhann Alfreð var á ferðinni fyrir helgi og leit við í Útilegumanninum, einni af þessum verslunum sem fólk er að kíkja við í fyrir ferðalög helgarinnar. Það er hitabylgja fyrir austan og margir á ferðinni í júlí. Við heyrðum í stemningunni í búðinni.
Íbúar í miðbænum eru áhyggjufullir vegna innbrotahrinu og kalla eftir því að yfirvöld taki málin fastari tökum. Á fimmta tug innbrota hafa verið tilkynnt til lögreglustöðvar 1 í þessum mánuði, þar af 20 í miðborginni. Sigrún Tryggvadóttir, formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur, var hjá okkur.
Steiney var á flakki um Norðurlandið. Hún kom við á Blönduósi þar sem hún hitti Valdimar Guðmannsson, eða Valla Húnabyggð eins og hann er kallaður, og Kristínu Ingibjörgu Lárusdóttur, sem sögðu henni frá Húnavöku sem hefst í kvöld
Birt
15. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.