Hljóðvegur 1

Jógvan með hóp til Færeyja, bæjarstjóraröltið á Flúðum, Wacken-hátíðin og tímarit hinsegin daga

Tímarit Hinsegindaga er komið út. Tímaritið er eina hinsegin tímaritið sem kemur út í prentuðu formi árlega á Íslandi og er því dreift víðsvegar um landið. Bjarndís Tómasdóttir ritstjóri blaðsins ætlar líta við hjá okkur og segja okkur frá blaðinu og mikilvægi þess fyrir hinsegin samfélagið víðsvegar um landið.

Wacken, ein stærsta þungarokkshátíð heims, var haldin í síðustu viku. Þarna komu saman 85 þúsund manns alls staðar úr heiminum og á á annað hundrað hljómsveitir á borð við Judas Priest, Europe og Sabaton. Stór hópur Íslendinga sótti hátíðina og þar á meðal var innanhús maður af RÚV, fréttamaðurinn Brynjólfur Þór Guðmundsson. Hann ætlar segja okkur frá hátíðinni.

Það er örugglega ótrúlega gaman fara til Færeyja. En ég get ímyndað mér það alveg stórkostlegt undir leiðsögn Jógvans Hansen tónlistarmanns. Það er einmitt það sem stendur til, Jógvan er á leið með hópi til Færeyja um næstu helgi og ætlar dvelja og leiðsegja góðum hópi á vegum Kvan ferðaskrifstofu. Við ætlum heyra aðeins í kappanum og forvitnast betur um þessa skemmtilegu ferð.

Bæjarstjóraröltið er vikulegur liður hér á Hljóðvegi 1 þar sem bæjarstjórar sýna okkur sína uppáhaldsstaði í bæjarfélaginu sem ekki endilega allir vita af. Í þessari viku er það hún Aldís Hafsteinsdóttir, sveitastjóri í Hrunamannahrepp sem ætlar sýna okkur falda perlu á Flúðum.

Og lok kíkir Ragnar Eyþórsson bíóséni til okkar. Hann er búinn sjá Ódysseif vitum við og ætlar örugglega sjá Spiderman sem sló öll met um helgina vestanhafs. Hann kíkir til okkar eftir klukkan fimm.

En við byrjum með honum Birni Malmquist fréttamanni sem hefur fylgst með atburðum í Cueta, hólmlendu Spánar í Norður-Afríku. Ráðherrafundi Schengen-ríkjanna lauk áðan og Björn ætlar segja okkur betur frá stöðu mála

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-04

GRAFÍK - Þúsund Sinnum Segðu Já.

Harris, Calvin, Jazzy - Satisfy.

R.E.M. - The One I Love.

JUDAS PRIEST - You've Got Another Thing Comin'.

GCD - Sumarið er tíminn.

FRIÐRIK ÓMAR & JÓGVAN - Sveitalíf.

Árný Margrét - In a dream.

Swift, Taylor - I Knew It I Knew You.

Kristmundur Axel, Friðrik Dór Jónsson - 1800 mílur.

Birt

4. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,