Steiney húkkar sér far, dómstóll götunnar og vikan botnuð
Steiney var á ferð og flugi um Norðurlandið á puttanum og leyfði hlustendum að fylgjast með.
Jóhann Alfreð og Hólmfríður stýrðu skútunni upp í Efstaleiti og lásu upp botna sem bárust þættinum í kjölfar þess að Bragi Bergmann þúsundfjalasmiður flutti fyrripart í fimmtudagsþættinum. Að þessu sinni var ort um Heimsmeistaramótið í fótbolta og úrslitaleikinn sem fer fram á sunnudag.
Jón Haukur Unnarsson slímmálaráðherra sagði frá hátíðinni Mannfólkið breytist í slím sem er haldin um helgina á Akureyri. Steiney hitti þar jafnframt nokkra góða gesti og tók þá tali.
Dómstóll götunnar var aftur á ferðinni og nú var spurt um fyrirhugað samfélagsmiðlabann sem Inga Sæland skoðar nú að leggja á börn og unglinga.
Birt
17. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.