Fyrst á dagskrá var konungur ávaxtanna. Það eru til feykilegar margar tegundir af þessum ávexti en bara á Indlandi finnast um 1.200 tegundir. Á morgun geta gestir á hátíðinni Listasumar á Akureyri gert sér glaðan dag og fengið að bragða á indversku mangói á Múlabergi á Hótel Kea, á milli klukkan 16 og 18. Þórdís Jóhanna Lareau, hjá indverska sendiráðinu, kom til okkar og sagði okkur betur frá konungi ávaxtanna og viðburðinum fyrir norðan.
Bændablaðið óskar nú eftir ábendingum um einhleypa bændur fyrir Bænder! Eins konar Tinder nema fyrir bændur. „Okkur þykir vænst um að fá að heyra frá fólki sem víðast yfir landið þannig nú skal ekki hika!“ - segir í frétt blaðsins þar sem fólk er hvatt til að senda póst með helstu upplýsingum, mynd, auk óska um hvaða kosti maki þarf að bera. Þröstur Helgason, ritstjóri blaðsins, kom til okkar og sagði okkur frá innreið blaðsins á stefnumótamarkaðinn.
Líftæknifyrirtækið Kerecis þekkja eflaust flest hlustenda okkar og þá fyrir framleiðslu á sáraroði eða plástrum búna til úr þorskroði. Aðalframleiðslan og hjarta fyrirtækisins er staðsett á Ísafirði, þar sem hún Steiney okkar var einnig stödd í vikunni og hún hitti fyrir stofnandann og forstjórann Guðmundur Fertram Sigurjónsson sem sagði henni frá starfseminni og útskýrði hvernig varan nýtist fólki með alvarleg sár á hreint magnaðan hátt.
Jóhann Alfreð var á ferð um Hveragerði í gær og hitti þar meðal annars Njörð Sigurðsson, sagnfræðing. Hann mun leiða sögugöngu um bæinn á laugardaginn. Þeir ræddu upphaf byggðar í Hveragerði og örlagasögu kanadískrar hersveitar sem var staðsett í bænum í upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar.
Íþróttafélagið Vestri í Ísafjarðarbæ varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins 22. ágúst í fyrra, þegar meistaraflokkur karla í knattspyrnu sigraði lið Vals 1-0 á troðfullum Laugardalsvelli. Með því varð einnig ljóst að Vestri myndi enn frekar brjóta blað í sögu félagsins með þátttöku í Evrópukeppni félagsliða. Nú er það orðið ljóst að Vestri mun etja kappi við lið Qarabag frá Aserbaídsjan í Baku fimmtudaginn 9. júlí og forsvarsmenn Vestra raka nú saman stuðningsfólki sínu til þessarar fræknu ferðar. Við hringdum í Samúel Samúelsson og fengum að heyra hvernig undirbúningurinn gengur.
Í gær styttist hringvegurinn um tólf kílómetra þegar nýr vegkafli var opnaður um Hornafjörð. Aðdragandi verksins hefur verið ansi langur en fyrstu áætlanir voru lagðar fram fyrir meira en tuttugu árum. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar var á línunni.