Steiney var stödd út úr húsi og ákvað að taka inn stemmninguna við áhorf á HM. Hún horfði á sinn fyrsta heila leik á sportbarnum Ölver í góðum hópi og tók púlsinn á stemmingunni í kringum leikina.
Yrðlingurinn Stjarna spáir Argentínumönnum og Svisslendingum áfram í leikjum dagsins á HM. Austurfrétt vakti fyrst athygli á rebba litla en fram að þessu hefur lágfótan spáð rétt fyrir um sigurvegarann í þremur af fjórum síðustu leikja 16 liða úrslitanna. Anton Berg Sævarsson, maðurinn sem heldur utan um spádóma Stjörnu, var á línunni.
Bæjarstjóraröltið er fastur liður á Hljóðvegi 1. Jóhann Alfreð var staddur í Eyjum á dögunum og fékk Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra til að segja sér frá einum af sínum uppáhaldsstöðum á eynni.
Í morgun bárust þær fregnir að Megas, eða Magnús Þór Jónsson, tónlistarmaður, rithöfundur og myndlistarmaður væri fallinn frá. Við báðum Óla Palla um að setja saman lítinn Megasarpakka – í minningu Megasar sem við fluttum í upphafi þáttar.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-07-07
SPRENGJUHÖLLIN - Glúmur.
Birnir, GDRN - Vilt fá.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
SÓLDÖGG - Leysist Upp.
Nýdönsk - Ekkert mál.
Kristmundur Axel, Friðrik Dór Jónsson - 1800 mílur.
KT TUNSTALL - Suddenly I See.
Steinunn Jónsdóttir - Spóla til baka.
Megas - Hvert örstutt spor.