Tímarit Hinsegindaga er komið út. Tímaritið er eina hinsegin tímaritið sem kemur út í prentuðu formi árlega á Íslandi og er því dreift víðsvegar um landið. Bjarndís Tómasdóttir ritstjóri blaðsins ætlar að líta við hjá okkur og segja okkur frá blaðinu og mikilvægi þess fyrir hinsegin samfélagið víðsvegar um landið.
Wacken, ein stærsta þungarokkshátíð heims, var haldin í síðustu viku. Þarna komu saman 85 þúsund manns alls staðar að úr heiminum og á á annað hundrað hljómsveitir á borð við Judas Priest, Europe og Sabaton. Stór hópur Íslendinga sótti hátíðina og þar á meðal var innanhús maður af RÚV, fréttamaðurinn Brynjólfur Þór Guðmundsson. Hann ætlar að segja okkur frá hátíðinni.
Það er örugglega ótrúlega gaman að fara til Færeyja. En ég get ímyndað mér að það sé alveg stórkostlegt undir leiðsögn Jógvans Hansen tónlistarmanns. Það er einmitt það sem stendur til, Jógvan er á leið með hópi til Færeyja um næstu helgi og ætlar að dvelja og leiðsegja góðum hópi á vegum Kvan ferðaskrifstofu. Við ætlum að heyra aðeins í kappanum og forvitnast betur um þessa skemmtilegu ferð.
Bæjarstjóraröltið er vikulegur liður hér á Hljóðvegi 1 þar sem bæjarstjórar sýna okkur sína uppáhaldsstaði í bæjarfélaginu sem ekki endilega allir vita af. Í þessari viku er það hún Aldís Hafsteinsdóttir, sveitastjóri í Hrunamannahrepp sem ætlar að sýna okkur falda perlu á Flúðum.
Og lok kíkir Ragnar Eyþórsson bíóséni til okkar. Hann er búinn að sjá Ódysseif vitum við og ætlar örugglega að sjá Spiderman sem sló öll met um helgina vestanhafs. Hann kíkir til okkar eftir klukkan fimm.
En við byrjum með honum Birni Malmquist fréttamanni sem hefur fylgst með atburðum í Cueta, hólmlendu Spánar í Norður-Afríku. Ráðherrafundi Schengen-ríkjanna lauk nú áðan og Björn ætlar að segja okkur betur frá stöðu mála
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-04
GRAFÍK - Þúsund Sinnum Segðu Já.
Harris, Calvin, Jazzy - Satisfy.
R.E.M. - The One I Love.
JUDAS PRIEST - You've Got Another Thing Comin'.
GCD - Sumarið er tíminn.
FRIÐRIK ÓMAR & JÓGVAN - Sveitalíf.
Árný Margrét - In a dream.
Swift, Taylor - I Knew It I Knew You.
Kristmundur Axel, Friðrik Dór Jónsson - 1800 mílur.