Hljóðvegur 1

Dómstóll götunnar, afmælisveisla Harry Potter og gufubeygður viður

Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr Dalsbúi í Mosfellsdal. Lögregla og meindýraeyðar hafa í dag unnið hörðum höndum því hafa uppi á loðdýrunum. Bjarni Bjarnason fjallkóngur Mosfellsdals var á línunni.

Rithöfundurinn Hildur Knútsdóttir vakti athygli á því í vikunni henni hefði verið boðið samstarf sem fólst í hún veitti leyfi fyrir afnotum af bókum sínum til þjálfa gervigreindarforrit án þess greiðslu fyrir. Hildur mætti í hljóðstofu og ræddi stöðu rithöfunda á tímum gervigreindar.

Galdrastrákurinn Harry Potter ætti afmæli á föstudaginn væri hann til í alvöru. Í tilefni af því slær Bókasafn Garðabæjar upp afmælisveislu fyrir börn. Hægt verður gera sér töfrasprota, búa til sokka fyrir Dobbý og komast því í hvaða heimavist maður á heima í. Ásbjörg Una er skipuleggjandi afmælisveislunnar.

Þjófnaður og innbrot í miðborg Reykjavíkur þrefölduðust í sumar. Borgin og lögreglan vilja bregðast við þessari þróun meðal annars með því efla nágrannavörslu, velferðarþjónustu og síðast en ekki síst myndavélaeftirlit. En hvað finnst fólki um myndavélunum fjölgi? Er það sátt við eftirlitið með almennum borgurum aukist á meðan yfirvöld reyna stöðva innbrotahrinuna. Við ákváðum leggja málið fyrir dómstól götunnar. Við tókum velvalda dómara tali í Kringlunni. Við fáum heyra hér á eftir hvað þeim finnst.

Leggja á 19 Kv háspennustreng frá Önundarfirði yfir í Staðardal, Súgandafirði, fyrir vestan. Framkvæmdir eru hafnar en þetta er síður en svo einfalt verkefni og kemur þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Gró meðal annars við sögu. Við ræddum við Björn Davíðsson, framkvæmdastjóra Snerpu á Ísafirði.

Vöruhönnuðurinn Jón Helgi Hólmgeirsson var koma heim úr 2 vikna ferð til Bandaríkjanna þar sem hann lærði gufubeygja við hjá hinum virta skóla Haystack Mountain School of Craft. Hann lýsir reynslunni sem smá eins og vera í klaustri.

Birt

29. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,