Hljóðvegur 1

Ólga í breskum stjórnmálum, lögreglumaður stígur sporin og grjóthleðsla í Höfnum

Sumartónlistarhátíðin Hjarta Hafnafjarðar fer af stað á fimmtudaginn og það í tíunda sinn. Gestum hefur fjölgað mikið ár frá ári en skipuleggjendur áætla um 65 þúsund hafi sótt hátíðina í fyrra. Páll Eyjólfsson framkvæmdastjóri Bæjarbíós kom til okkar og sagði hverju gestir mættu vænta í sumar!

Keir Starmer sagði af sér embætti forsætisráðherra Bretlands og formennsku Verkamannaflokksins í morgun. Andy Burnham borgarstjóri Manchester er sagður líklegasti arftaki hans. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttakona hefur fylgst með atburðarásinni í dag. Við fórum yfir þessi mál með henni.

Steiney kíkti niður á höfnina á Ísafirði og kynnti sér siglinganámskeið sem þar er haldið fyrir börn og unglinga. Krakkarnir voru vísu aðeins spenntari fyrir því hoppa í sjóinn en læra á kajak þegar Steiney kíkti við.

Jóhann Eyvindsson, er rannsóknarlögreglumaður og sinnir líka umferðareftirliti þegar þörf er á. En hann dansar líka Salsa og eins og þjóðin komst fyrir helgina. Myndskeið af Jóhanni stíga dansspor á þjóðhátíðardaginn er nálgast á þriðja hundruð þúsund áhorf á samfélagsmiðlum. Við hittum á Jóhann í dag og forvitnuðumst um augnablikið sem festist á filmu, starfið og salsað.

Sveinn Enok Jóhannsson, bóndi í Höfnum, heldur grjóthleðslunámskeið þriðja sumarið í röð. Hafnir er landnámssvæði sem hefur geyma merkar minjar og er hluti þeirra gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag. Við ræddum við Svein.

Birt

22. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,