Ólga í breskum stjórnmálum, lögreglumaður stígur sporin og grjóthleðsla í Höfnum
Sumartónlistarhátíðin Hjarta Hafnafjarðar fer af stað á fimmtudaginn og það í tíunda sinn. Gestum hefur fjölgað mikið ár frá ári en skipuleggjendur áætla að um 65 þúsund hafi sótt hátíðina í fyrra. Páll Eyjólfsson framkvæmdastjóri Bæjarbíós kom til okkar og sagði hverju gestir mættu vænta í sumar!
Keir Starmer sagði af sér embætti forsætisráðherra Bretlands og formennsku Verkamannaflokksins í morgun. Andy Burnham borgarstjóri Manchester er sagður líklegasti arftaki hans. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttakona hefur fylgst með atburðarásinni í dag. Við fórum yfir þessi mál með henni.
Steiney kíkti niður á höfnina á Ísafirði og kynnti sér siglinganámskeið sem þar er haldið fyrir börn og unglinga. Krakkarnir voru að vísu aðeins spenntari fyrir því að hoppa í sjóinn en að læra á kajak þegar Steiney kíkti við.
Jóhann Eyvindsson, er rannsóknarlögreglumaður og sinnir líka umferðareftirliti þegar þörf er á. En hann dansar líka Salsa og eins og þjóðin komst að nú fyrir helgina. Myndskeið af Jóhanni að stíga dansspor á þjóðhátíðardaginn er að nálgast á þriðja hundruð þúsund áhorf á samfélagsmiðlum. Við hittum á Jóhann í dag og forvitnuðumst um augnablikið sem festist á filmu, starfið og salsað.
Sveinn Enok Jóhannsson, bóndi í Höfnum, heldur grjóthleðslunámskeið þriðja sumarið í röð. Hafnir er landnámssvæði sem hefur að geyma merkar minjar og er hluti þeirra gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag. Við ræddum við Svein.
Birt
22. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.