Helgarútgáfan

Meðmæli Kötlu Vigdísar, flunkunýtt Vestra-lag og úti á landi tónar

Helgarútgáfan heilsaði frá Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði þennan laugardaginn. Gamla sjúkrahúsið hýsir söfn íbúa Ísafjarðarbæjar og er í daglegu tali kallað Safnahúsið en þetta er eitt af fallegstu byggingum landsins. Þegar Helgarútgáfan var mætt í hús varð heldur gestkvæmt og ein þeirra sem leit við í kaffibolla var Guðfinna Hreiðarsdóttir ein forstöðukvenna hússins og fræddi hún hlustendur um þetta sögufræga hús.

Guðfinna gerði gott betur en fræða okkur um húsið, hún kom með glænýtt lag úr smiðju Þormóðs Eiríkssonar sem verður lag stuðningsfólks Vestra, íþróttafélagsins í bænum. Þetta varð frumflutningur lagsins og það var svo nýtt það var ekki komið nafn á lagið þegar það heyrðist á Rás 2 þennan laugardaginn.

Hún Katla Vigdís Vernharðsdóttir er ung en þó afar reynd tónlistarkona sem söðlaði um á dögunum og flutti vestur til þess taka sér leikskóla í með kærasta sínum. Þau höfðu verið í námi í leikskólafræðum í Skotlandi og flugu svo beinustu leið á Ísafjörð. Katla er í hljómsveitinni Celebs frá Suðureyri ásamt bræðrum sínum og hún bauð upp á bragðmikla Meðmælasúpu þennan daginn.

Úr næsta firði kom næsti viðmælandi en það var hún Steinunn Ása Sigurðardóttir sem sagði okkur frá endurreisn leikfélagsins á Flateyri. Frumsýnt verður á næstu dögum glænýtt og frumsamið leikrit eftir tvítuga Flateyringinn Ölmu Sóleyju Önnudóttur Wolf er kallast Með kjafti og klóm.

Þar sem stjórnandi þáttarins var staddur úti á landi þennan daginn varð tónlisti af landsbyggðinni af megninu til. Og nóg er til! Við heyrðum tónlist af öllu landinu, íslenskt tónlistarfólk og hljómsveitir í bland við það nýjasta og ferskasta af Rásinni ykkar góðu!

Frá kl. 12:40

CELEBS & SIGGA BEINTEINS - Þokan

MONOTOWN - Peacemaker

OLIVIA DEAN - Nice To Each Other

VINIR VORS OG BLÓMA - Frjáls

ROXY MUSIC - Let's stick together

ÆFING - Fínn karl kerlingin hans

DÚMBÓ OG STEINI - Frækorn og flugur

Mugison - Til lífsins í ást

Úlfur Úlfur Hljómsveit - Börnin og bítið

Upplyfting - Traustur vinur

ELTON JOHN - Goodbye Yellow Brick Road

Frá kl. 14:00

LJÓTU HÁLFVITARNIR - Lukkutroll

VALGEIR SKORRI - Frýs / Flýt

GREIFARNIR - Skiptir engu máli

ADDISON RAE - Headphones On

BACHMAN-TURNER OVERDRIVE - You Ain't Seen Nothing Yet

EMINEM - My name is

SÚELLEN - Verona

GOSI & SALÓME KATRÍN - Tilfinningar

Frá kl. 15:00

B.G. OG INGIBJÖRG - Góða ferð

BLOODGROUP - Hips Again

MÁNAR - Leikur vonum

BAGGALÚTUR - Bildudals grænar baunir

DEXYS MIDNIGHT RUNNERS - Come on Eileen

FACON - Vísitölufjölskyldan

Birt

7. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,