Víðsjá

Hrund Atla á Mokka, persnesk mál, Atómstöðin, Högg

Á sýningunni Allt í klessu á Mokka, sýnir Hrund Atla 28 verk unnin með olíupastel litum á flauelispappír. Hrund hefur lengi starfað á mörkum myndlistar og kvikmyndagerðar en eftir að hafa unnið lengi framan við tölvuna segist hún finna frelsi í því að leggja aðeins tækninni og sofa ein í tjaldi uppi á hálendi með skissubók. Við mælum okkur mót við Hrund yfir kaffibolla á Mokka.

Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur, heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni skoðar hann persnesk tungumál en á ferðalagi sínu mun hann einnig gaumgæfa boðskap Saraþústra spámanns.

Næsta skáldsaga í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness verður hin umdeilda Atómstöð. Við gröfum upp gamlan hugleiðingarpistil Margrétar Björnsdóttur frá Neistastöðumum um Atómstöðina í þættinum.

Karl Ágúst Þorbergsson, leikhúsrýnir, segir frá sýningunni Högg eftir James Graham sem sýnd er um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,