• 00:01:20Hugarflug: Steinunn Knúts Önnudóttir
  • 00:17:27Chigago: Rýni
  • 00:30:18Ástarbréf í Kvennasögusafni

Víðsjá

Eldheit ástarbréf, Chicago og sjálfbærni í listum

Alvöru ástarbréf eru mögulega innilegustu textar sem fyrirfinnast og langflest þeirra hugsuð til lestrar í einrúmi. En ástarbréf á pappír eru þess eðlis þau geymast, mörg hver í læstum kistlum innan um ryk og löngu gleymt dót í löngu gleymdum geymslum, allt þar til afkomendur ljúka kistlunum upp og þar með leyndarmálunum. FJöldi slíkra bréfa leynast í skjalasöfnum um allan heim, og það á einnig við um okkar eigið þjóðskjalasafn. Um helgina heldur félag um 18 aldar fræði málþing um ástarjátningar í bréfum og dagbókum. Meðal þeirra sem þar taka til máls er Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri Kvennasögusafns íslands, við heimsækjum hana í þætti dagsins, og fáum kíkja í nokkur ástarbréf, meðal annars frá þjóðþekktum einstaklingum.

Einnig segir Nína Hjálmarsdóttir okkur frá sinni upplifun af Chicago, sem Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mundir.

En við byrjum á Hugarflugi, árlegri ráðstefnu Listaháskóla Íslands, sem hefst í dag og heldur áfram á morgun með stútfullri dagskrá af áhugaverðum málstofum og fyrirlestrum. Þema Hugarflugs í ár er: Margfeldi framtíða, þar sem hugleiddar verða þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og sem munu móta sameiginlega framtíð okkar. Steinunn Knúts-Önnudóttir segir okkur frá vídjóesseyju sem hún sýnir og fjallar um á ráðstefnunni, tengslum hennar við áherslur ráðstefnunnar og af pælingum sínum um sjálfbærni í listsköpun.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

9. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,