Sígild og samtímatónlist

Akhunov, Pärt, Kurtág, Grieg og Kreisler

Tónlistin í þættinum:

Tveir lyklar að einu ljóði eftir J. Brodsky (Two keys to one J. Brodsky's Poem) eftir Sergey Akhunov.

Verkið er í tveimur þáttum: Moon; og The river.

Flytjendur eru Ksenija Sidorova sem leikur á harmóníku og Goldmund-kvartettinn (strengjakvartett). Útgefið í plötunni Piazzolla reflections árið 2021.

Sinfónía Nr. 1, "Polyphonic" eftir Arvo Pärt Þættirnir eru:

I. Kanon

II. Preludio e fuga

Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur, Eva Ollikainen stjórnar. Útgefið á plötunni Complete Symohonies 16. apríl 2026.

8 dúó fyrir fiðlu og simbalom op. 4 eftir György Kurtág. Viktor Kopatchinsky leikur á simbalon og Patricia Kopatchinskaja á fiðlu. Útgefið á plötunni Rapsodia árið 2010

5 Ljóð (5 Digte) Op. 69 - ljóðaflokkur eftir Edvard Grieg saminn við ljóð eftir Otto Benzon.

Söngljóðin heita:

I. Der gynger en båd på bølge

II. Til min dreng

III. Ved moders grav

IV. Snegl, snegl!

V. Drømme

Flytjendur eru Lise Davidsen, sópran og Leif Ove Andsnes píanóleikari.

Upptökur fóru fram 5.-8. september 2021 í Stormen Konserthus, Bodø, Noregi. Útgefið á plötunni Edvard Grieg - Lise Davidsen & Leif Ove Andsnes árið 2022.

Rondino yfir stef eftir Beethoven eftir Fritz Kreisler. Vilde Frang leikur á fiðlu og José Gallardo á píanó. Útgefið á plötunni A Journey with Vilde, árið 2017.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þættir

,