
Sígild og samtímatónlist
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Tanzen möcht ich - dúett úr óperettunni Sardasfurstynjunni, Die Csárdásfürstin eftir Imre (Emmerich) Kálmán. Angelika Kirchschlager, messósópran og Simon Keenlyside, baríton syngja. Með leikur hjlómsveitin Tonkünstler-Orchester, stjórnandi er Alfred Eschwé. Útgefið á plötunni My heart alone : favorite operetta arias and duets árið 2007.
Fülemüle nóta (Söngur næturgalans) - söngljóð (dúett) eftir Imre (Emmerich) Kálmán. Anna Korondi sópran og Istvan Kovács baríton syngja. Peter Stamm leikur með á píanó. Útgefið á plötunni 20 Lieder / 4 piano pieces árið 2005.
Gamlir ungverskir samkvæmisdansar fyrir flautu, klarinettu og strengi (e. Old Hungarian ballroom dances for flute, clarinet and strings) eftir Györgi Ligeti. Schönberg Ensemble og Asko Ensemble leika, stjórnandi er Reinbert de Leeuw. Útgefið á plötunni The Ligeti Project Volumes 1-5 árið 2008.
Þáttur nr. 2 í e-moll, Allegretto grazioso úr Slavneskum dönsum, op.72, B.145 eftir Antonin Dvorák. Alexandre Tharaud, Mariam Batsashvili leika fjórhent á píanó. Útgefið á plötunni Four hands - Alexandre Tharaud & friends árið 2024.
L'invitation au voyage, söngljóð eftir Henri Duparc. Ljóðið orti Charles Baudelaire. John Mark Ainsley, tenór, syngur einsöng ; Graham Johnson leikur undir á píanó.
Útgefið á plötunni L'invitation au voyage : Mélodies from La bella époque árið 2006.
Chanson triste, söngljóð eftir Henri Duparc. Ljóðið orti Jean Lahor. Jessye Norman sópran syngur, á píanó leikur Dalton Baldwin. Útgefið á plötunni Les chemins de l'amour árið 1977.
Poème (Ljóð) fyrir fiðlu og hljómsveit op. 25 eftir Ernest Chausson. Verkið er í tveimur þáttum: I. Lento e misterio; II. Poco Lento. Lisa Batiashvili leikur einleik á fiðlu með Sinfóníuhljómsveit Fíladelfíu (Philadelphia Orchestra), stjórnandi er Yannick Nézet-Séguin. Útgefið á plötunni Secret Love Letters árið 2022.
Trois chansons de Charles d'Orléans - Þrír söngvar við ljóð eftir Charles d’Orléans, eftir Claude Debussy.
Lögin heita:
I. Dieu! Qui l'a fait bon regarder
II. Quant j'ai ouy le tabourin
III. Yver, vous n'estes qu'un villain
Flytjendur eru sönghópurinn The King’s Singers. Hljóðritað í apríl og maí 2024 í St Nicholas Church, Kemerton. Útgefið á plötunni Such Stuff as Dreams Are Made On árið 2025.

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.