Tónlistin í þættinum:
6. préludía, Des pas sur la neige úr Préludes Bók 1, L. 117 eftir Claude Debussy. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið 27. mars 2020 á plötunni Debussy Rameau.
Impromptu fyrir víólu og píanó (1931) eftir Dmitríj Shostakovitsj. Nils Mönkemeyer leikur á víólu og Rostislav Krimer á píanó. Heiti plötu: Shostakovich Discoveries : World Premiere Recordings and Rarities Útgáfudagur: 23. maí 2025 (gefið út af Deutsche Gramophone í tilefni af 50 ára ártíð tónskáldsins sem lést árið 1975.) Upptökur fóru fram 24. júní 2018 í Gohrisch, Concert Barn
Ich kann nicht sitzen úr óperunni Elektru, eftir Richard Strauss. Cheryl Studer sópransöngkona syngur, og með leikur hljómsveit Bæverska útvarpsins undir stjórn Wolfgang Sawallisch.
Anthèmes 2 (1997) : þáttur VI eftir Pierre Boulez.
Undirþættirnir eru:
1. Allant assez serré dans le tempo
2. Calme régulier - Agité - Brusque
3. Calme sans trainer d´un mouvement très régulier - Libre
Meðlimir í The Ensemble Intercontemporain flytja ; Hae-Sun Kang, fiðla ; Andrew Gerzso rafhljóðfæri. Frumhljóðritun. Útgefið á plötunni Boulez : Sur incises árið 2000.
Portrett nr. 3 eftir Snorra Sigfús Birgisson. Snorri Sigfús leikur á píanó. Útgefið á plötunni Portrett nr. 1-7 árið 1998.
Nú sé ég og faðma þig, syngjandi vor eftir Sigurð Helgason. Ljóðið orti Þorsteinn Erlingsson. Örlygur Benediktsson útsetti til kórflutnings með tilliti til útsetningar Sigfúsar Einarssonar
Kammerkór Suðurlands, stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.
Lög úr þáttaröðinni „Hin einu sönnu Fjárlög “ 2016.
Sónata fyrir selló og píanó eftir Claude Debussy.
Verkið skiptist í eftirfarandi þætti:
Prologue
Sérénade
Finale
Á selló leikur Hafliði Hallgrímsson, og Robert Bottone leikur á píanó. Hljóðritað í Austurbæjarbíói 1974.
Vorið langt, þjóðlag. Gadus Morhua (Eyjólfur Eyjólfsson, þverflauta; Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir. selló). Útgefið á plötunni Peysur og Parruk árið 2020.