Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist

Tónlistin í þættinum:

Fantaisie pour flûte et piano en ut majeur, op.79 (fantasía fyrir flautu og píanó í C-dúr) eftir Gabriel Fauré. Michel Debost leikur á þverflautu og með honum á píanó leikur Jean-Philippe Collard. Útgefið á plötunni Musique de chambre: Vol. I (1979).

Sinfónía nr. 1, „Polyphonic“ eftir Arvo Pärt. Þættirnir eru: I. Kanon og II. Preludio e fuga. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur, stjórnandi er Eva Ollikainen. Útgefið á plötunni Complete Symohonies (2026) (Útgáfudagur: 16.04.2026)

Chant de linos eftir André Jolivet. Emilía Rós Sigfúsdóttir leikur á þverflautu og Ástríður Alda Sigurðardóttir á píanó. Útgefið á plötunni Portrait (2013).

Serenaða fyrir strengjasveit (1978) eftir Valentin Silvestrov. Kammersveitin Musica Viva leikur undir stjórn Alexanders Rudin. Útgefið á plötunni Valentin Silvestrov 1996.

La lune blanche luit dans les bois úr ljóðaflokknum La Bonne Chanson op. 61 eftir Gabriel Fauré. Ljóðið er eftir Paul Verlaine. Anne-Sofie von Otter mezzósópran syngur. Með henni leika: Bengt Forsberg á píanó; Nils-Erik Sparf á fiðlu; Ulf Forsberg á fiðlu; Matti Hirvikangas á lágfiðlu og Mats Lidström á selló. Útgefið á plötunni The artist's album (1998). Útgefandi: Deutsche Grammophon.

Birt

11. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þættir

,