Tónlistin í þættinum:
Fyrsti þáttur af þremur úr verkinu Spil eftir Karólínu Eiríksdóttur. Guðrún S. Birgisdóttir og Martial Nardeau leika á flautur. Útgefið á plötunni Spil árið 1999.
Gaspard de la nuit eftir Maurice Ravel. Angela Hewitt leikur einleik á píanó.
Verið er í þremur þáttum:
1. Ondine
2. Le Gibet
3. Scarbo
Útgefið á The complete solo piano music (Disk 2 af 2) árið 2002.
Lindin í mónum (2010) fyrir sópran og bassaklarinett eftir Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Snorri Hjartarson orti ljóðið. Kammersveitin Azima Ensemble flytur, en hún er hér í formi dúetts: Margrét Hrafnsdóttir, sópran og Ármann Helgason, bassaklarínetta). Upptaka fór fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði sumarið 2022. Útgefið á plötunni Logn árið 2022. Lögin á plötunni voru samin á 12 ára tímabili frá árinu 2010-2022.
Langur skuggi (septett) eftir Hauk Tómasson. Kammersveit Reykjavíkur leikur. Hún er svo skipuð: á fiðlur leika Rut Ingólfsdóttir, Júlíana Elín Kjartansdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir leikur á víólu; Hrafnkell Orri Egilsson og Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló og Richard Korn á kontrabassa.
Verkið er í 6 þáttum:
1. Semplice transparente ;
2. Arcico, ritmico ;
3. Presto nervoso ;
4. Lento, tenace ;
5. Presto, feroce ;
6. Calmo bucolico
Útgefið á plötunni Langur skuggi : kvartettar og septett eftir íslensk tónskáld, árið 2016.
Celos eftir Astor Piazzolla. Gidon Kremer leikur á fiðlu, Vadim Sakharov á píanó, Alois Posch á kontrabassa, Michel Portal á klarinettu og Per Arne Glorvigen á bandoneón. Útgefið á plötunni Hommage à Piazzolla árið 1996.