
Sígild og samtímatónlist
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Píanósónata nr. 3 í h-moll, op. 58 eftir Frederic Chopin. Glenn Gould leikur á píanó.
Verkið er í fjórum þáttum:
1. Allegro maestoso
2. Scherzo. Molto vivace
3. Largo
4. Finale. presto non tanto
Hljóðritað 1970. Plata: Chopin, Mendelssohn, Scriabin, Prokofiev (1995).
Sinfónía nr. 43 í Es-dúr (Merkúr) eftir Franz Joseph Haydn
Flytjendur:
Austurrísk-ungverska Haydn-hljómsveitin leikur, stjórnandi er Adam Fischer.
Þættirnir eru:
1. Allegro
2. Adagio
3. Menuetto og trio
4. Finale, allegro
Hljóðritað 1994 í Haydnsaal, Esterházy Palace, Eisenstadt í Austurríki.
Útgefið á plötunni Haydn Symhponies 43-45, árið 2002.
Það kom söngfugl að sunnan eftir Atla Heimi Sveinsson. Ljóðið er eftir Adolf Bäuerle en íslenska þýðingu gerði Þorsteinn Gylfason. Francisco Javier Jáuregui útsetti. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran syngur, á gítara leika Francisco Javier Jáuregui og Pétur Jónasson. Útgefið á plötunni Atli Heimir Sveinsson - Sönglög með gítar, árið 2024.

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.