Sígild og samtímatónlist

Beethoven-sónata og fleira á ljúfum nótum

Tónlistin í þættinum:

Prélude úr La damoiselle élue, L. 62 eftir Claude Debussy. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið á plötunni Debussy Rameau árið 2020.

Adagio und Allegro op. 70 (1849) eftir Robert Schumann. Emil Friðfinnsson leikur á horn og Þórarinn Stefánsson leikur á píanó. Upptaka fór fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 24. júní 2013. Stafærn yfirfærsla á hljóðritum og gerð frumeintaks: Bjarni Rúnar Bjarnason. Útgefið á plötunni Tónlist fyrir horn og píanó árið 2022.

Sónata nr. 8 í G-dúr op. 30 nr. 3 eftir Ludwig van Beethoven. Þættir verksins eru þrír:

I. Allegro assai

II. Tempo di minuetto

III. Allegro vivace

Isabelle Faust leikur á fiðlu og Alexander Melnikov leikur á píanó. Útgefið á plötunni Complete sonatas for piano and violin árið 2009.

Fyrsti þáttur, Adagio úr Sinfóníu nr. 49 í f-moll, Hob.I:49 „Passían“ eftir Franz Joseph Haydn. Hljómsveitin Ludwig Orchestra leikur, stjórnandi er Barbara Hannigan. Upptaka fór fram í júní og júlí 2019 í Muziekcentrum van de Omroep í Hollandi. Útgefið á plötunni La Passione árið 2020.

Lascia la spina cogli la rosa úr óratóríunni Il trionfo del tempo e del disinganno eftir Georg Friedrich Händel. Cecilia Bartoli mezzósópran syngur, Hljómsveitin Les Musiciens du Louvre leika með undir stjórn Marc Minkowski. Útgefið á plötunni Opera proibita árið 2005.

Vals í fís-moll, „Valse melancolique“ KKIb/7 eftir Frédéric Chopin. Stephen Hough leikur á píanó. Hljóðritað 17.-20. október 2010 í Concert Hall, Wyastone Estate, Monmouth, Englandi. Útgefið á plötunni The complete waltzes árið 2011.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þættir

,