• 00:10:53Börn skimuð fyrir ofbeldi
  • 00:28:48100 sýningar af Moulin Rouge
  • 00:49:05Klippuhagkerfið
  • 01:13:03Fréttir vikunnar með bæjarstjórum

Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Klippuhagkerfið, börn skimuð fyrir ofbeldi, 100x Moulin Rouge og bæjarstjórar í fréttum vikunnar

Skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum hefst nú í október en verkefnið er meðal 25 aðgerða sem stjórnvöld kynntu haustið 2024 og fela í sér leiðir til að bregðast við ofbeldi á meðal barna og gegn börnum. Alma Möller heilbrigðisráðherra segir okkur betur frá þessu ásamt því að fræða okkur um ofbeldismóttöku barna á Landspítala en þar starfar nú þverfaglegt teymi sem samanstendur af sálfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskyldufræðingi og sérfræðingi í barnalækningum.

Á morgun verður sýning 100 á Moulin Rouge! Söngleiknum. Við ætlum að fá stjörnu sýningarinnar, Hildi Völu í heimsókn á þessum tímamótum en hún er þegar búin að stíga 99 sinnum á svið og túlka Satine í þessum magnaða söngleik.

Flest höfum við á einhverjum tímapunkti dottið inn í klippur á samfélagsmiðlum, hvort sem þær eru úr kvikmyndum, þáttum eða það sem er vinsælast um þessar mundir: Hlaðvörpum. Markaðssérfræðingurinn Steinar Þór Ólafsson birti áhugaverðar hugleiðingar um það sem hann kallar klippuhagkerfið á TikTok og við ætlum að fá hann til að útskýra það fyrir okkur og ræða um hvernig miðlun á efni hefur stökkbreyst á stuttum tíma.

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 fer nú fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og við gripum þau Gylfa Ólafsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og Berglindi Ósk Guðmundsdóttur bæjarstjóra Akureyrar, glóðvolg og fara þau yfir fréttir vikunnar með okkur í beinni frá hljóðstofu RÚV á Akureyri.

Lagalisti:

SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Hvar Er Draumurinn?.

KYLIE MINOGUE - Can't Get You Out Of My Head.

FRIÐRIK DÓR - Dönsum (eins og hálfvitar).

LABELLE - Lady Marmelade.

Nýdönsk - Fullkomið farartæki.

Lady GaGa - Bad Romance.

ABBA - Lay All Your Love On Me.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,