Morgunútvarpið

Landhelgisgæslan,EM í frjálsum,Sævar Helgi og sólmyrkvinn og Eiríkur Bergmann um klofning þjóðar í ESB

Evrópumótið í frjálsíþróttum hefst í Birmingham á Englandi í dag og stendur mótið yfir dagana 10. - 16. ágúst. Ísland á átta keppendur og RÚV sýnir beint frá öllum mótshlutum. Við heyrðum í manninnum sem allt veit um frjálsar íþróttir - geitinni Sigurbirni Árna Arngrímssyni sem mun koma sér fyrir í hljóðstofu RÚV á Akureyri næstu daga og lýsa mótinu.

Okkar maður Sævar Helgi Bragason hefur í nógu snúast þessa dagana enda styttist í stóru stundina en erum bara rúmir tveir sólarhringar í almyrkva á sólu. Sævar Helgi kom til okkar og við tókum sólmyrkvann allar 360 gráðurnar.

Enginn munur er á fjölda þeirra sem hyggjast segja og þeirra sem ætla segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið 29. Ágúst. Þetta sýna niðurstöður Gallup-könnunar sem birt var fyrir helgi og gerð var fyrir hreyfinguna Áfram Ísland. . Hart er tekist á á öllum vígsstöðvum og mikill hiti hefur færst í umræðuna og svo virðist sem þjóðin klofin í tvennt. Við ræddum þessi mál strax loknum átta fréttum við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor sem skrifaði á dögunum grein í Heimildina sem bar yfirskriftina: Um hvað snýst málið eiginlega? Og það er einmitt það sem við hér í Morgunútvarpinu leitum svara við.

Mikil aukning varð á útköllum hjá Landhelgisgæslunni í sumar og sögn yfirflugstjóra gæslunnar Sigurðurðar Heiðars Wiium þyrfti tvöfalda flota hennar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti vera. Við ræddum stöðu Landhelgisgæslunnar, sumarið og verkefnin við Sigurð Heiðar í þættinum.

Birt

10. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,