Morgunútvarpið

Foreldrar kljást við fæðingarorlofssjóð, fræga fólkið í kröppum dansi, frumkvöðlar og fótbolti á Akureyri og fréttir vikunnar

Við rákum augun í skoðanagrein á Vísi þar sem yfirskriftin var Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg. Það er Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingkona Flokks fólksins sem skrifaði og fjallar greinin um þá þjónustu sem Fæðingarorlofssjóður veitir nýbökuðum foreldrum. Við heyrðum í Kolbrúnu og ræddum inntak greinarinnar við hana.

Það er líf og fjör í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri en þar er hefur Drift EA komið sér fyrir en þau starfa með fyrirtækjum í bænum og fjárfesta í frumkvöðlum. Þau sinna einnig hvers konar viðburða- og námsskeiðahaldi og halda úti hlaðvarpi sem heitir Driftkastið. Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir er framkvæmdastýra Drift EA, frumkvöðull og englafjárfestir og hún sagði okkur betur frá starfseminni.

Það er mikið um vera á Akureyri þessa helgina en hingað norður er kominn fjöldinn allur af ungum stúlkum til keppa á N1 mótinu í knattspyrnu. KA og N1 héldu fyrsta N1 mót stúlkna á nýliðnu sumri og framkvæmdin þótti heppnast afar vel og á endurtaka leikinn. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA heimsótti hljóðstofu RÚV á Akureyri.

Venju samkvæmt á föstudögum förum við yfir það helsta sem verið hefur í fréttum síðustu daga og þessu sinni fengum við til okkar Amöndu Guðrúnu Bjarnadóttur fréttamann á RUV og Óðin Svan Óðinsson formann bæjarráðs Akureyrarbæjar og fyrrum fréttamann.

Það hefur mikið gengið á í heimi fræga fólksins í vikunni. Stjörnubloggarinn Perez Hilton tók upp á því skaða sjálfan sig í beinni útsendingu á TikTok, sögusagnir eru á kreiki um knattspyrnukappinn Ronaldo og Georgina hafi loks gengið í hjónaband og leik- og söngkonan Ariana Grande ætlar draga sig úr sviðsljósinu frá og með 1. september næstkomandi en þá lýkur tónleikaferð hennar, Eternal Sunshine Tour. Við köfuðum dýpra í þessi mál og fleiri með Evu Ruzu sérfræðingi í heimi hinna frægu.

Birt

7. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,